03.09.26 - 17:59
Kári Snorrason
Albert féll á mállýskuprófinu

Mynd: Lazio

Mynd: Lazio
Albert Guðmundsson gekk fyrr í vikunni til liðs við ítalska félagið Lazio frá Fiorentina. Hann kemur til liðsins á láni en Lazio getur gert skiptin varanleg á meðan láninu stendur.
Albert hefur verið kynntur með pompi og prakt á samfélagsmiðlum Lazio undanfarna tvo daga.
Hann var meðal annars fenginn til þess að spreyta sig á að giska á orð úr rómverskri mállýsku þar sem hann fékk að vita íslensku þýðinguna á orðunum áður.
Það má segja að Albert hafi fallið á prófinu því af níu mögulegum svörum náði hann einungis tveimur réttum.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið hressa.