03.09.26 - 08:45
Elvar Geir Magnússon
Arsenal gæti reynt við Kroupi í janúar - Wijnaldum til Chelsea?

Eli Junior Kroupi stígur léttan dans.

Mynd: EPA

Wijnaldum er félagslaus en ferskur.

Mynd: EPA

Eli Junior Kroupi stígur léttan dans.

Mynd: EPA

Góðan og gleðilegan fimmtudag og velkomin með okkur í slúðurpakkann í boði Powerade. Þó búið sé að loka glugganum þá hætta ensku götublöðin ekkert að koma út!
Arsenal mun skoða það að að gera tilboð í franska framherjann Eli Junior Kroupi (20) hjá Bournemouth í janúarglugganum. (Independent)
Gabriel Heinze aðstoðarþjálfari Arsenal ræddi við Inter fyrir gluggalok til að athuga möguleika á því að kaupa Lautaro Martínez (29). Ítalska félagið sagði argentínska framherjann ekki til sölu. (Mail)
Chelsea hefur sett sig í samband við Georginio Wijnaldum (35) sem gæti komið til félagsins á frjálsri sölu. Þessi hollenski miðjumaður, sem lék áður fyrir Liverpool, er án félags eftir að hafa yfirgefið Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu fyrr í sumar. (Foot Mercato)
Newcastle og Aston Villa munu halda áfram að sækjast eftir kamerúnska framherjanum Christian Kofane (20) hjá Bayer Leverkusen þegar félagaskiptaglugginn opnar aftur. (Football Insider)
Manchester United ákvað að semja ekki við vinstri bakvörð á síðustu dögum félagaskiptagluggans þar sem þeir fundu ekki nægilega góðan leikmann til að styrkja hópinn. (Express)
Everton hafnaði 65 milljóna punda tilboði frá Chelsea í enska miðjumanninn James Garner (25) þar sem tilboðið kom of seint í félagaskiptaglugganum. (Talksport)
Anthony Martial (30), fyrrum framherji Manchester United, er án félags og vill komast aftur í ensku úrvalsdeildina. (Teamtalk)
Everton ætlar ekki að fara inn á markaðinn fyrir samningslaus leikmenn þrátt fyrir erfið lok félagaskiptagluggans. (Telegraph)
Brasilíski framherjinn Richarlison (29) hjá Tottenham, hefur samþykkt að ganga til liðs við tyrkneska félagið Trabzonspor. Launin eru þrisvar sinnum hærri en þau sem hann þénar hjá Spurs. (Fabrizio Romano)