Fotbolti.net
03.09.26 - 09:24
Elvar Geir Magnússon

Barcola í hóp á morgun - „Langaði mjög mikið í Liverpool“

Barcola kom til Liverpool í vikunni.

Barcola kom til Liverpool í vikunni.

Canon

Mynd: Liverpool

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segir að allar líkur séu á því að Bradley Barcola verði í hópnum á morgun þegar liðið heimsækir Ipswich í ensku úrvalsdeildinni.

Franski sóknarleikmaðurinn var keyptur frá Paris Saint-Germain. Samkomulagið er upp á 123 milljóna punda kaupverð. Upphafsgreiðslan er 106 milljónir punda. Barcola skrifaði undir fimm ára samning og mun klæðast treyju númer 29 hjá Liverpool.

„Við erum virkilega ánægðir með Bradley, það var í forgangi hjá okkur að fá inn afskaplega góðan leikmann í þessa stöðu. Hann kemur hingað líka með rétta hugarfarið, hann langaði mjög mikið í Liverpool. Hann vildi koma til okkar og hann vill hjálpa okkur," segir Iraola.

„Ef allt fer vel á æfingu í dag þá verður hann klárlega með okkur á morgun."
Bradley Barcola til Liverpool (Staðfest)
TENGT EFNI

Bradley Barcola til Liverpool (Staðfest)

Þegar tölurnar eru skoðaðar
Við fyrstu sýn virðist Barcola vera arftaki fyrir Luis Díaz en Liverpool ákvað ekki að fá leikmann beint til að fylla hans skarð fyrir ári síðan. Samkvæmt tölfræði Opta eru mikil líkindi með þeim tveimur.

Aðalstaða Barcola er vinstri kantur en hann spilaði sem framherji til 17 ára aldurs, sem endurspeglast í hreyfingum hans og skotvali. Síðasta tímabil átti hann að meðaltali 3,5 skot á hverjum 90 mínútum í frönsku deildinni. Iraola segir Barcola vel geta spilað á hægri kanti einnig.

Hann skoraði ellefu mörk en var með 9,83 í væntum mörkum (xG). Enginn leikmaður PSG eða vængmaður í deildinni náði hærra xG samtals á tímabilinu 2025-26.

Ánægður með að halda Gakpo
Hollenski landsliðsmaðurinn Cody Gakpo var orðaður við Manchester City en fór ekkert og verður áfram í búningi Liverpool.

„Cody er mjög klókur leikmaður. Samband mitt við hann hefur verið opinskátt frá upphafi. Hann hefur staðið sig mjög vel með okkur, í öllum leikjum undirbúningstímabilsins, í öllum leikjunum. Hann skoraði í fyrsta leiknum og lagði upp í þeim næsta. Ég er ánægður með að halda honum," segir Iraola.

„Mér líður mun betur núna þegar búið er að loka markaðnum. Við vitum hvað við höfum, við erum með fullt af hæfileikum. Nú þurfum við bara að standa okkur, sýna frammistöðu og vinna okkar vinnu."
Andoni Iraola ræðir við leikmenn.

Andoni Iraola ræðir við leikmenn.

Canon

Mynd: EPA

Gakpo fór ekkert.

Gakpo fór ekkert.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.