Fotbolti.net
02.09.26 - 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

El Shaarawy orðinn liðsfélagi Mikaels (Staðfest)

El Shaarawy orðinn liðsfélagi Mikaels (Staðfest)
Canon

Mynd: Genoa

Stephan El Shaarawy er genginn til liðs við Genoa á frjálsri sölu en hann yfirgaf Roma í sumar þegar samningurinn hans rann út.

Shaarawy er 33 ára gamall vængmaður en hann hóf ferilinn með Genoa árið 2008. Hann spilaði þrjá leiki áður en hann gekk til liðs við AC Milan árið 2011.
Hann fór síðan til Roma árið 2016 og sneri aftur árið 2021 eftir þrjú ár hjá Shanghai Shenhua í Kína. Hann var hluti af liði Roma sem vann Sambandsdeildina tímabilið 2021/22.

Hann á 32 landsleiki að baki fyrir Ítalíu og skoraði í þeim sjö mörk.

Genoa er án stiga eftir tvær umferðir í ítölsku deildinni. Mikael Egill Ellertsson er á mála hjá félaginu og var í byrjunarliðinu í báðum leikjunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.