Fotbolti.net
02.09.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Siggi um spænska framherjann: Það sem hann er tilbúinn að gera fyrir liðið er ómetanlegt

Victor Bertomeu (t.v.)

Victor Bertomeu (t.v.)

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Spænski framherjinn Victor Bertomeu gekk til liðs við Þór í júlí en hann hefur spilað fimm leiki án þess að skora.

Sigurður Heiðar Höskuldsson var spurður út í hann eftir sigur liðsins gegn ÍBV um helgina.
„Hann hefur ekki fengið bestu leikina til að standa þarna frammi og lítið úr að moða. Hann leggur sig fram og með frábært hugarfar og kemur með stemningu inn í hópinn," sagði Siggi.

Bertomeu fékk gult spjald fyrir að hrækja á vítapunktinn áður en víti Vicente Valor fór forgörðum. Hann var tekinn af velli í hálfleik en Siggi sagði að hann hafi verið tæpur á að fá seinna gula spjaldið.

„Hann hefur verið ótrúlega flottur og við erum ánægðir með hann. Við þurfum að vera með betri þjónustu fyrir hann til að hann poppi með mörk. Vinnuframlagið og það sem hann er tilbúinn að gera fyrir liðið er ómetanlegt."

Heimild: Vísir

Siggi Höskulds: Fyrsti af sjö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.