03.10.18 - 15:47
Elvar Geir Magnússon
Aston Villa búið að reka Steve Bruce (Staðfest)

Brúsarinn er orðinn atvinnulaus.

Mynd: Getty Images

Brúsarinn er orðinn atvinnulaus.

Mynd: Getty Images
Aston Villa er búið að reka Steve Bruce sem stjóra liðsins. Sky Sports greinir frá þessu en landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er meðal leikmanna Villa.
Villa gerði 3-3 jafntefli gegn Preston í gær en á leiknum kastaði óánægður stuðningsmaður kálhaus í Bruce.
Þá hrópuðu margir stuðningsmenn á leiknum að þeir vildu stjóraskipti.
Villa er með 15 stig eftir ellefu umferðir í Championship-deildinni og situr í 12. sæti. Þá féll liðið úr enska deildabikarnum eftir tap gegn Burton.

Bruce tók við Aston Villa í október 2016. Liðið var nálægt því að komast upp í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili en tapaði fyrir Fulham í úrslitaleik umspilsins á Wembley.
Bruce er 57 ára og var stjóri Hull áður en hann tók við Villa. Samkvæmt frétt Mirror var leikmönnum tilkynnt það áðan að búið væri að leysa Bruce frá störfum.
Samkvæmt veðbönkum eru Thierry Henry, fyrrum leikmaður Arsenal og Stóri Sam Allardyce, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, líklegastir til að taka við Villa.
Uppfært 16:03: Aston Villa hefur staðfest brottrekstur Steve Bruce og segir að leitin að eftirmanni hans sé komin á fulla ferð. Á meðan muni Kevin MacDonald, varaliðsþjálfari Villa, stýra aðalliðinu.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |