Fotbolti.net
03.10.18 - 17:13
Elvar Geir Magnússon

Elfar Freyr framlengir við Breiðablik (Staðfest)

Elfar Freyr verður áfram í Kópavogi.

Elfar Freyr verður áfram í Kópavogi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn sterki Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Kópavogsfélagið tilkynnti þetta nú síðdegis en það hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og komst í bikarúrslit þar sem það tapaði gegn Stjörnunni.
Elfar Freyr sem er 29 ára gamall hefur spilað 232 mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks og skorað í þeim 10 mörk. Hann lék um tíma erlendis með AEK í Grikklandi og Stabæk í Noregi. Elfar Freyr á þar að auki að baki 6 leiki með U-21 árs liði Ísland og einn A-landsleik.

„Það þarf vart að taka fram hve þessi áfangi er mikilvægur fyrir Blikaliðið. Elfar Freyr er geysilega vinnusamur og sterkur miðvörður sem gefur alltaf 110% í alla leiki," segir á heimasvæði Breiðabliks á Facebook.

„Elfar missti af nokkrum leikjum í sumar vegna axlarmeiðsla sem hann hlaut í Grindavík í byrjun júní en hann var fljótur að ná sér og spilaði lokaleiki mótsins."

„Blikar fagna þessum tíðindum og vona að þetta verði upphafið að nýjum bikarkafla í sögu Blikaliðsins enda var Elfar Freyr lykilmaður í Bikarmeistaraliði Blika árið 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010."
Elfar Freyr framlengir við Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.