Fotbolti.net
03.11.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Ian Holloway tekur við Crystal Palace (Staðfest)

Ian Holloway tekur við Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ian Holloway hefur ákveðið að hætta hjá Blackpool og taka við stjórnartaumunum hjá Crystal Palace.

Holloway tekur við Palace af Dougie Freedman sem hætti á dögunum til að taka við Bolton.

Talið er að hinn 49 ára gamli Holloway hafi samþykkt fjögurra og hálfs árs samning hjá Crystal Palace.
Holloway hefur stýrt Blackpool undanfarin þrjú tímabil en hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2010.

Crystal Palace er sem stendur í fjórða sæti ensku Championship deildarinnar, sex stigum á undan Blackpool sem er í tólfta sæti.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.