banner
   sun 03. nóvember 2019 19:14
Atli Arason
Myndband: Ekki fyrir viðkvæma - fótbrot Andre Gomes
Mynd: Getty Images
Andre Gomes var borinn af velli þegar hann fótbrotnaði eftir tæklingu Son eða samstuð við Serge Aurier í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni á milli Everton og Tottenham Hotspur. Nánar má lesa um leikinn hér.

Martin Atkinson dómari leiksins ætlaði upphaflega að gefa Son gult spjald fyrir tæklinguna en breytti því í rautt eftir að hafa séð löppina á Gomes. Allir sem voru inn á vellinum voru í miklu andlegu uppnámi þegar þeir sáu hve alvarleg meiðsli Gomes voru. Óhætt er að segja að Andre Gomes spili ekki fótbolta aftur í langan tíma.

Beinbrotið sjálft var ekki sýnt í endursýningum í sjónvarpsútsendingu leiksins og segir það allt um hversu ljótt brotið hefur verið. Hér að neðan er myndband sem er klippt úr beinni útsendingu af leiknum sjálfum en það er eina sjónarhornið af beinbrotinu sem hefur verið birt þegar þessi frétt er rituð. Þar sést hægri löpp Gomes hangandi eins og hún sé nánast að detta af. Myndbandið verður sennilega ekki lengi á Youtube en það er alls ekki fyrir viðkvæma. Myndbandið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner