Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. desember 2019 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chambers svarar: Sýna stundum aðeins eina hlið sögunnar
Calum Chambers.
Calum Chambers.
Mynd: Getty Images
Það hefur verið myndband í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem leikmenn Arsenal ganga fram hjá ungum dreng á leið sinni í búningsklefann fyrir leikinn gegn Norwich um síðustu helgi.

Á myndbandinu stöðvar enginn leikmanna Arsenal til að heilsa drengnum og hafa þeir verið gagnrýndir fyrir það.

Calum Chambers ákvað að svara gagnrýninni með færslu á Twitter.

„Myndavélarnar sýna stundum aðeins eina hlið sögunnar," skrifaði Chambers. „Það er alltaf gaman að hitta lukkukrakkana í búningsklefanum fyrir leiki. Við vonum að Billy hafi átt góðan dag og það var mjög gaman að hitta hann."

Chambers birti einnig myndir sem má sjá hér að neðan.

„Takk Calum. Ég vildi sofa, en svo sá ég þetta kjaftæði og ætlaði að að svara. Þú ert fljótari en ég svo ég fer aftur að sofa," skrifaði Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður Arsenal, við tíst Chambers.



Athugasemdir
banner
banner
banner