Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. desember 2020 21:17
Brynjar Ingi Erluson
Deschamps ánægður með Giroud: Þetta er stór karakter
Olivier Giroud
Olivier Giroud
Mynd: Getty Images
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, var ánægður með framlag Olivier Giroud gegn Sevilla í Meistaradeildinn en framherjinn skoraði fjögur mörk í leiknum.

Giroud er að nálgast markamet franska landsliðsins en á meðan hefur hann lítið fengið að spila með Chelsea. Hann fékk þó tækifærið gegn Sevilla og skoraði fjögur mörk í leiknum og fimmta mark hans í Meistaradeildinni á tímabilinu.

Deschamps ræddi það í landsleikjatörninni að Giroud þyrfti að finna sér annað félag þar sem hann fengi að spila.

„Það er alltaf mikilvægt fyrir framherja að skora mörk og það skiptir ekki máli hvaða leikur það er," sagði Deschamps.

„Hann fékk þá frábæru ánægju að byrja þennan leik og það gerist ekki oft hjá honum þó svo hann skori oft mikilvæg mörk. Það gerist ekki á hverjum degi að menn skori fernu í Meistaradeildinni gerist ekki á hverjum degi."

„Olivier er maður með mikinn karakter. Hann þarf að standa í baráttu gegn öllum. Það var mikilvægt að vinna Sevilla því þeir náðu fyrsta sætinu. Þetta er gott fyrir hann og klúbbinn,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner