28.07.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Breiðablik lánar Lilju í Hauka (Staðfest)

Mynd: Breiðablik

Mynd: Breiðablik
Lilja Þórdís Guðjónsdóttir mun klára tímabilið með Haukum á láni frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks.
Lilja er 17 ára gömul og hefur þegar leikið tíu leiki með Breiðabliki í Bestu deildinni á þessu tímabili. Hún hefur jafnframt komið við sögu með 2. flokki félagsins.
Á síðasta tímabili lék hún sex leiki í deild-og bikar fyrir Blika. Nú fær hún tækifæri til að afla sér dýrmætrar reynslu með Haukum í toppbaráttu Lengjudeildarinnar.
Lilja verður á láni hjá Haukum út tímabilið. Liðið er í fjórða sæti með 17 stig eftir tíu leiki, aðeins fimm stigum frá öðru sætinu og á því enn raunhæfa möguleika á að vinna sér sæti í Bestu deildinni.
Hún á einnig að baki fjóra leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim tvö mörk.