Fotbolti.net
28.07.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Þórir lék í öruggum sigri gegn Tyrklandsmeisturunum

Þórir í leik með Venezia

Þórir í leik með Venezia

Canon

Mynd: Venezia FC

Þórir Jóhann Helgason lék hálftíma er Venezia vann öruggan 3-0 sigur á Tyrklandsmeisturum Galatasaray í æfingaleik í Linz í Austurríki í gær.
Þórir, sem gekk í raðir Venezia frá Lecce í sumar, hefur spilað í öllum þremur æfingaleikjum liðsins og unnið þá alla.

Þórir kom inn á á 62. mínútu gegn Galatasaray og var inni á vellinum þegar ítalska liðið gerði út um leikinn. Öll þrjú mörkin komu á síðustu tuttugu mínútunum, en Lion Lauberbach skoraði tvö og John Yeboah eitt.

Galatasaray tefldi fram sterku liði og leikmenn á borð við Victor Osimhen, Ilkay Gündogan, Leroy Sane, Lucas Torreira og Lesley Ugochukwu komu við sögu.

Venezia vann sér sæti í ítölsku A-deildinni með því að vinna B-deildina í vor. Bjarki Steinn Bjarkason er einnig á mála hjá félaginu en var ekki með í þessum leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.