Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. desember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo fékk að taka vítið - „Það var komið að honum"
Cristiano Ronaldo tók vítið og skoraði
Cristiano Ronaldo tók vítið og skoraði
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, segir að það hafi verið komið að Cristiano Ronaldo að taka víti fyrir liðið er það vann Arsenal 3-2 á Old Trafford í gær.

Bruno hefur verið vítaskytta United frá því hann kom til félagsins í janúar á síðasta ári.

United hafði aðeins fengið eitt víti á þessu tímabili fram að leiknum í gær en hann skaut því himinhátt yfir markið í 1-0 tapi gegn Aston Villa fyrr á tímabilinu.

Hann segir að það hafi verið komið að Ronaldo í gær. Ronaldo skoraði úr spyrnunni og tryggði sigurinn gegn Arsenal.

„Við ræddum þetta ekkert. Ég klúðraði síðustu spyrnu þannig ég treysti honum eins og ég treysti sjálfum mér. Hans tími var kominn að taka vítið því ég klúðraði síðustu. Það skiptir ekki máli hver tekur vítin," sagði Bruno við BBC.
Athugasemdir
banner
banner