Fotbolti.net
04.01.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson

David James tekur við Kerala Blasters (Staðfest)

David James varði mark ÍBV árið 2013.

David James varði mark ÍBV árið 2013.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

David James, fyrrum markvörður enska landsliðsins, hefur verið ráðinn þjálfari Kerala Blasters í ofurdeildinni í Indlandi.

James spilaði með ÍBV sumarið 2013 en þaðan fór hann til Kerala Blasters þar sem hann spilaði árið 2014 áður en hanskarnir fóru upp á hillu.
James tekur núna við þjálfun liðsins af Rene Meulensteen sem hætti í vikunni eftir slakt gengi.

Dimitar Berbatov og Wes Brown, fyrrum leikmenn Manchester United, eru báðir á meðal leikmanna hjá Kerala Blasters.

Hinn 47 ára gamli James á að reyna að snúa gengi liðsins við en Kerala er í áttunda sæti af tíu liðum í deildinni eftir sjö umferðir.

With former @LFC & @England\'s David James back at Kerala Blasters (replacing Rene Meulensteen) .. there are now four English Head Coaches in the Indian Super League.. including John Gregory, Teddy Sheringham & Steve Coppell. Good luck at @KeralaBlasters DJ! 🇮🇳⚽ #ISL pic.twitter.com/uYDZ1Glnfq

— Baljit Rihal (@BaljitRihal) January 3, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.