Fotbolti.net
04.01.18 - 19:23
Ívan Guðjón Baldursson

Mavropanos til Arsenal (Staðfest)

Mavropanos til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: PAS Giannina

Gríski miðvörðurinn Konstantinos Mavropanos er búinn að skrifa undir samning við Arsenal.

Arsenal greiðir 2.2 milljónir punda fyrir Mavropanos, sem var einnig eftirsóttur af Olympiakos og AEK frá Aþenu.
Mavropanos er talinn gríðarlega efnilegur og á tvo leiki að baki fyrir U21 lið Grikkja. Varnarmaðurinn átti tvítugsafmæli fyrir tæpum mánuði síðan.

George Tsitsonis, fréttamaður hjá AGONASport í Grikklandi, segir Mavropanos hafa verið meðal allra bestu miðvarða grísku deildarinnar á tímabilinu.

Mavropanos verður að öllum líkindum lánaður beint út þar sem Arsene Wenger telur hann ekki tilbúinn til að spila fyrir Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.