04.01.18 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Sandra María til Slavia Prag á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sandra María Jessen, fyrirliði Þór/KA, er gengin til liðs við tékkneska félagið Slavia Prag á láni. Sandra verður hjá Slavia Prag til loka apríl en þá kemur hún heim fyrir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Slavia Prag sló Stjörnuna út í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í haust en liðið mætir Söru Björk Gunnarsdóttur og félögum í Wolfsburg í 8-liða úrslitunum í mars.

Þetta er í annað sinn sem Sandra María freistar gæfunnar með erlendum stórliðum en í ársbyrjun 2016 samdi Sandra við Bayer Leverkusen og lék með þýska stórliðinu fram að byrjun Íslandsmóts.
„Þeir úti höfðu samband við mig eftir að mikill aðdáandi liðsins sem var staddur hér á Íslandi og var að fylgjast með í sumar. Hann hafði svo samband við klúbbinn og benti á mig og þá fór boltinn að rúlla. Þetta verður vonandi til þess að ég geti nýtt mér þetta til þess að taka næsta skref,\" sagði Sandra við heimasíðu Þórs.
Hin 22 ára gamla Sandra María er framherji sem á 20 landsleiki að baki en hún hjálpaði Þór/KA að verða Íslandsmeistari á síðasta tímabili.
Hér að neðan er viðtal við Söndru um félagaskiptin.