Fotbolti.net
04.01.18 - 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Schalke vann kapphlaupið um Pjaca (Staðfest)

Schalke vann kapphlaupið um Pjaca (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Schalke er búið að staðfesta komu króatíska kantmannsins Marko Pjaca til félagsins. Pjaca kemur til Schalke á láni út tímabilið.

Pjaca er 22 ára gamall og á 13 landsleiki að baki fyrir Króatíu. Ekki er pláss fyrir hann í liði Juventus eftir að hafa þurft að glíma við erfið meiðsli síðustu sex mánuði.
„Pjaca hefur staðist læknisskoðun og er búinn að skrifa undir samning,\" segir í yfirlýsingu frá Schalke.

Schalke greiðir laun leikmannsins að fullu og borgar eina og hálfa milljón evra til Juve fyrir lánið.

Wolfsburg tókst næstum að næla sér í Pjaca, en Atalanta, Mónakó, Zenit og Sassuolo vildu hann einnig lánaðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.