04.01.19 - 16:32
Magnús Már Einarsson
Arnar Viðars og Eiður Smári taka við U21 (Staðfest)

Guðni Bergsson kynnti Arnar Þór og Eið Smára til leiks á fréttamannafundi rétt í þessu. Þeir stýra liðinu næstu tvö árin hið minnsta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn þjálfari U21 liðs Íslands en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Eiður Smári Guðjohnsen verður aðstoðarþjálfari með honum.
Þeir gerðu tveggja ára samning og stýra Íslandi í undankeppni EM 2021.

Eyjólfur Sverrisson hefur þjálfað U21 liðið frá 2009 með Tómas Inga Tómasson sér til aðstoðar. Undir þeirra stjórn fór Ísland á EM í Danmörku árið 2011.
Nú taka Arnar og Eiður við en þeir voru herbergisfélagar í íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Arnar Þór hefur verið að vinna í Belgíu síðan hann hætti að spila fótbolta. Hann var þjálfari og aðstoðarþjálfari hjá Cercle Brugge áður en hann hóf að vinna hjá Lokeren árið 2015.
Hann hefur verið aðstoðarþjálfari Lokeren, en einnig hefur hann verið þjálfari til bráðabirgða, þá þegar aðalþjálfarinn hefur verið rekinn. Arnar byrjaði fyrr á þessu ári einnig að njósna fyrir íslenska landsliðið.
Eiður Smári tilkynnti að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna í fyrra. Hann hefur síðan unnið sem sérfræðingur í sjónvarpi, meðal annars í kringum leiki hjá íslenska landsliðinu. Hann hefur einnig verið að sækja sér þjálfaragráður, en þetta verður hans fyrsta þjálfarastarf.
U21 árs lið Íslands er með Ítalíu, Svíþjóð, Írlandi, Armeníu og Lúxemborg í riðli í undankeppni EM 2021. Fyrsti leikur er gegn Lúxemborg á heimavelli þann 6. september en þremur dögum síðar er annar leikur við Armeníu á heimavelli.