Fotbolti.net
04.01.19 - 18:19
Ívan Guðjón Baldursson

Clyne til Bournemouth (Staðfest)

Clyne til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

Bournemouth er búið að staðfesta komu Nathaniel Clyne sem verður á láni hjá félaginu út tímabilið.
Clyne er annar leikmaðurinn frá Liverpool til að ganga í raðir Bournemouth í dag eftir að félagið keypti sóknarmanninn unga Dominic Solanke fyrir um 20 milljónir punda.

Clyne er 27 ára hægri bakvörður sem var fastamaður í byrjunarliði Liverpool þar til á síðasta tímabili þegar hann missti sæti sitt.

Hann á 14 leiki að baki fyrir A-landslið Englands auk 17 leikja fyrir U21 og U19 landsliðin.

Clyne mun berjast við fyrirliðann Simon Francis um byrjunarliðssæti, en Francis er 33 ára gamall og hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.