04.01.19 - 16:11
Magnús Már Einarsson
Dominic Solanke til Bournemouth (Staðfest)
Keyptur á 19 milljóna punda

Farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images

Farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur keypt framherjann Dominic Solanke frá Liverpool. Talið er að kaupverðið hljóði upp á 19 milljónir punda en það gæti hækkað síðar meir ef Solanke stendur sig vel.
Hinn 21 árs gamli Solanke kom til Liverpool frá Chelsea sumarið 2017 en hefur ekki náð að festa sig í sessi á Anfield.
Solanke hefur ekkert komið við sögu á þessu tímabili með Liverpool en hann skoraði einungis eitt mark í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Jermain Defoe er að fara frá Bournemouth til Rangers á láni og Eddie Howe stjóri liðsins ákvað að bæta framherja við hópinn í staðinn.
Að auki er Bournemouth að fá bakvörðinn Nathaniel Clyne á láni frá Liverpool.

Introducing... pic.twitter.com/um3KiMCz92
— AFC Bournemouth (@afcbournemouth) January 4, 2019