Fotbolti.net
04.01.19 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Paqueta til Milan fyrir rúmlega 30 milljónir (Staðfest)

Paqueta til Milan fyrir rúmlega 30 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan er búið að ganga frá kaupunum á Lucas Paqueta frá brasilíska félaginu Flamengo.
Kaupverðið er óuppgefið en ítalskir fjölmiðlar eru sammála um að Milan sé að borga 35 milljónir evra fyrir leikmanninn. Við þá upphæð bætast 10 milljónir í bónusgreiðslur ef leikmaðurinn finnur sig í ítalska boltanum.

Paqueta er 21 árs gamall miðjumaður og skrifar hann undir fjögurra og hálfs árs samning við Milan, sem gildir til sumarsins 2023.

Paqueta hefur verið meðal bestu miðjumanna brasilíska boltans að undanförnu og er hann bæði góður sóknarlega og varnarlega, þó hann spili yfirleitt framarlega á miðjunni.

Hann lék sína fyrstu A-landsleiki fyrir Brasilíu á síðasta ári en hafði spilað 8 leiki með U20 liðinu þar áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.