Fotbolti.net
04.01.19 - 18:53
Ívan Guðjón Baldursson

Puncheon til Huddersfield (Staðfest)

Puncheon til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield er á botni ensku úrvalsdeildarinnar og var að bæta við sig kantmanninum þaulreynda Jason Puncheon á lánssamning út tímabilið.
Puncheon er 32 ára gamall og á rétt tæplega 200 úrvalsdeildarleiki að baki, langflesta með Crystal Palace.

Puncheon missti byrjunarliðssæti sitt í liði Crystal Palace á síðasta tímabili og er honum frjálst að leita sér að nýju félagi þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

Puncheon verður 33 ára í sumar og mögulegt að þetta verði hans síðasta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.