04.01.19 - 23:12
Ívan Guðjón Baldursson
Riise nýr yfirmaður íþróttamála hjá Birkirkara (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
John Arne Riise hefur verið ráðinn sem yfirmaður íþróttamála hjá Birkirkara FC í Möltu.
Riise gerði garðinn frægan með Liverpool þar sem hann vann Meistaradeildina árið 2005 en lék einnig fyrir Mónakó, Roma og Fulham á ferlinum.
Norðmaðurinn hressi er 38 ára gamall og lagði skóna á hilluna fyrir rúmlega tveimur árum, eftir að hafa spilað fyrir Chennaiyin FC í indversku Ofurdeildinni.
Birkirkara er meðal stærstu liða Möltu og vann efstu deild þar í landi síðast fyrir fimm árum. Liðið er í sjötta sæti af fjórtán sem stendur eftir fyrri helming tímabils.