04.01.19 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Stoke gengur frá kaupum á Benik Afobe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City er búið að ganga frá kaupum á Benik Afobe sem kemur til félagsins frá Wolves.
Afobe er 25 ára gamall og þótti einn efnilegasti sóknarmaður Evrópu þegar hann skoraði 23 mörk í 38 leikjum fyrir yngri landslið Englands.
Afobe ólst upp hjá Arsenal en var seldur til Wolves í janúar 2015. Hann gerði góða hluti með Wolves og var keyptur til Bournemouth fyrir metfé í kjölfarið.
Afobe náði ekki að skora mikið hjá Bournemouth og var keyptur aftur til Úlfanna síðasta sumar, sem lánuðu hann strax til Stoke City.
Lánssamningnum fylgdi kaupskylda og er Stoke að borga 12 milljónir punda fyrir sóknarmanninn, sem hefur gert 7 mörk í 28 leikjum fyrir félagið á tímabilinu.