banner
   lau 04. janúar 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pukki ekki með í dag - Tæpur fyrir Manchester
Mynd: Getty Images
Finnski sóknarmaðurinn Teemu Pukki gæti misst af næstu leikjum Norwich City vegna meiðsla á nára sem hann hlaut gegn Crystal Palace á nýársdag.

Pukki verður ekki með í bikarleiknum gegn Preston North End í dag og er tæpur fyrir leikinn á Old Trafford um næstu helgi.

„Teemu Pukki verður ekki með á morgun, hann er að glíma við minniháttar meiðsli á nára auk támeiðslanna. Ég get ekki sagt til um hvort hann verði klár fyrir Manchester United eða ekki," sagði Daniel Farke, stjóri Norwich.

Hinn ungi Adam Idah fær þá væntanlega tækifærið sem fremsti leikmaður Norwich í bikarnum í dag, þar sem Josip Drmic og Dennis Srbeny eru báðir frá vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner