Fotbolti.net
04.02.19 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Franco Di Santo til Rayo Vallecano á frjálsri sölu (Staðfest)

Franco Di Santo er öflugur í loftinu en hefur aldrei verið mikill markaskorari.

Franco Di Santo er öflugur í loftinu en hefur aldrei verið mikill markaskorari.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski sóknarmaðurinn Franco Di Santo fékk að yfirgefa Schalke á frjálsri sölu í janúarglugganum eftir að hafa spilað 88 leiki fyrir félagið á þremur og hálfu ári.
Di Santo var næstum búinn að skrifa undir hjá Galatasaray en tyrkneska félagið hætti við kaupin á síðustu stundu. Sóknarmaðurinn stóri flaug þá beint til Spánar þar sem nokkur félög höfðu áhuga á honum og endaði á að skrifa undir samning við Rayo Vallecano sem gildir út tímabilið.

Vallecano fór illa af stað í spænsku deildinni en er búið að rífa sig upp úr fallsæti með fjórum sigrum og einu jafntefli í síðustu fimm leikjum sínum. Liðið er á mikilli siglingu og krækti í fimm leikmenn í lokadegi janúargluggans, þar á meðal Mario Suarez og Uche Agbo.

Lesendur ættu að kannast við Di Santo sem þótti gífurlegt efni á sínum tíma. Hann skrifaði undir samning við Chelsea 2008 en tókst ekki að skora eitt einasta mark í 16 keppnisleikjum. Hann hefur síðan þá verið hjá Wigan og Werder Bremen en hann er 29 ára gamall og á 3 landsleiki að baki fyrir Argentínu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.