Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. mars 2020 08:00
Magnús Már Einarsson
Southgate styður Pickford: Markverðir gera mistök
Jordan Pickford.
Jordan Pickford.
Mynd: Getty Images
„Raunveruleikinn er sá að markverðir gera mistök og fólk gerir mikið úr þeim. Það er raunveruleikinn við þessa stöðu á vellinum," sagði Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga í gær, aðspurður út í Jordan Pickford markvörð Everton.

Pickford hefur verið gagnrýndur á tímabilinu og raddir hafa verið um að hann eigi að missa sæti sitt sem aðalmarkvörður enska landsliðsins fyrir EM í sumar.

„Hann hefur átt stóran þátt í velgengni okkar undanfarin þrjú ár. Það er gott að hann sé með samkeppni til að vera upp á sitt besta."

„Hann hefur náð að hrista þessa hluti af sér, það er lykill fyrir alla leikmenn, slíkt getur ráðið ferli þínum."

„Auðvitað gáfum við Nick Pope (makverði Burnley) leik í nóvember en þetta er staða á vellinum þar sem reyndari leikmenn hafa verið meiddir eða eru dottnir úr myndinni."

Athugasemdir
banner
banner
banner