Sjúkraflutningarkonan Tayla Porter fékk óvænt og skemmtilegt símtal frá Toby Alderweireld, varnarmanni Tottenham, á dögunum.
Tayla heldur mikið upp á Tottenham, en hún Alderweireld ákvað að hafa samband við hana eftir að hafa séð myndband af henni á samfélagsmiðlum.
Í myndbandinu er hún á leið til vinnu, en þegar hún gengur út um dyrnar hjá sér heyrist dynjandi lófatak. Það voru nágrannar hennar að þakka henni fyrir starf hennar sem heilbrigðisstarfsmaður á þessum erfiðu tímum.
Tayla gat ekki haldið aftur af tárunum.
Belgíski varnarmaðurinn hringdi í hana. Hann gat ekki boðið henni miða á leik þar sem hún og faðir hennar eru ársmiðahafar. Hann bauðst því til að senda henni treyju. Það myndband má sjá hér að neðan.
After a clip of her being applauded before a shift was viewed by millions, Spurs fan and NHS worker Tayla Porter got a surprise video call from @AlderweireldTob 🚑👏 pic.twitter.com/p5JrBkJdDG
— SPORTbible (@sportbible) April 3, 2020
Athugasemdir