Fotbolti.net
04.04.26 - 16:06
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Fram og Víkings: Gylfi og Elías Már byrja

Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Íslandsmeistarar Víkings heimsækja Fram í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en leikurinn hefst klukkan 17:00. Byrjunarliðin hafa verið gerð opinber.

Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar voru í landsliðsverkefni þegar Víkingur vann Vestra 4-0 í Meistarakeppni KSÍ á dögunum en koma báðir inn í byrjunarliðið.

Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk gegn Vestra en er ekki á skýrslu og Elías Már Ómarsson kemur inn.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 4 Víkingur R.
Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson er á láni hjá Fram frá Víkingi og er ekki með í dag. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ákvæði í lánssamningi Atla og Fram þarf að greiða Víkingi væna summu ef hann kemur við sögu í leik á móti þeim í sumar.

Meiðsli hjá Fram: Varnarmaðurinn Sigurjón Rúnarsson, brasilíski töframaðurinn Fred hinn sænski Jakob Byström eru allir að glíma við meiðsli. Byström er þó í hóp og gæti spilað einhverjar mínútur en hinir tveir eru ekki í hóp.

Byrjunarlið Fram

  • 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
  • 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
  • 5. Kyle Douglas Mc Lagan
  • 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
  • 9. Róbert Hauksson
  • 12. Simon Tibbling
  • 16. Israel Garcia Moreno
  • 19. Kennie Knak Chopart (f)
  • 23. Már Ægisson
  • 25. Freyr Sigurðsson
  • 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið Víkingur R.

  • 1. Ingvar Jónsson (m)
  • 4. Peter Oliver Ekroth (f)
  • 6. Gunnar Vatnhamar
  • 9. Helgi Guðjónsson
  • 10. Gylfi Þór Sigurðsson
  • 11. Daníel Hafsteinsson
  • 19. Óskar Borgþórsson
  • 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
  • 25. Valdimar Þór Ingimundarson
  • 28. Elías Már Ómarsson
  • 77. Stígur Diljan Þórðarson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.