Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   lau 04. apríl 2026 20:18
Snæbjört Pálsdóttir
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Kristórfer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks,  setti tvö mörk í dag
Kristórfer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, setti tvö mörk í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik er komið áfram í 16. liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir góðan 1-6 sgur á liði Kormáki/Hvatar á Sauðárkróksvelli í dag. 

„Bara mikilvægt að ná í sigurinn, komast áfram í næstu umferð og bara professional að klára leikinn." Sagði Kristófer Ingi Kristinsson spurður um fyrstu viðbrögð eftir leik. 


Lestu um leikinn: Kormákur/Hvöt 1 -  6 Breiðablik

Kristófer Ingi setti tvö mörk í dag, hvernig var tilfinningin?

„Það er bara flott að ná mörkum, en númer eitt, tvö og þrjú að ná sigrinum þannig ég er bara mjög sáttur í dag."

„Við náttúrlega vissum að þeir myndu vera þéttir og við þyrftum að vera þolinmóðir. Mikilvægt að halda tempói og bara gera sömu hluti aftur og það skilaði sér með nokkrum mörkum í dag."

„Þeir eru auðvitað með fullt af flinkum leikmönnum þarna og við vissum alveg að ef við værum ekki að fókusa að þá gætu þeir alveg skaðað okkur. Þannig við þurftum að halda haus og gera okkar. Mér finnst þetta bara professional hjá okkur og fínt að klára þetta með sigri."

Samningurinn hjá Kristófer Inga er að renna út eftir tímabilið er hann í einhverjum viðræðum við Breiðablik eins og staðan er núna?

„Eins og staðan er núna þá er ég bara að fókusa á tímabilið og hef ekkert heyrt eitt né neitt þannig ég fókusa bara á að spila."

„Markmiðið hjá liðinu er að við viljum stefna á að vinna allt. Metnaðurinn er þar og mér finnst við vera með frábært lið sem að getur klárlega gert það. Ég sjálfur auðvitað vill leggja mig fram í það, kannski aðeins meira en ég hef gert upp á síðkastið. Númer eitt, tvö og þrjú að halda mér heilum og skila mínum mörkum."

Sjáðu viðtalið í heild hér að ofan


Slapp
banner