Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 04. maí 2021 22:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Avram Glazer hunsaði fréttakonu sem spurði út í United
Avram Glazer lengst til hægri
Avram Glazer lengst til hægri
Mynd: Getty Images
Fréttakona Sky News í bandaríkjunum reyndi að spyrja Avram Glazer, einn af eigendum Manchester United, spurninga í dag.

Avram var á leið upp í bifreið sína þegar fréttakona Sky reyndi að spyrja hann út í stuðningsmenn Manchester United

„Hefuru eitthvað að segja við stuðningsmenn? Er kominn tími til að selja félagið? Hefuru ekkert að segja? Eru stuðningsmenn einungis viðskiptavinir í þínum augum? Hafa viðskiptavinir alltaf rétt fyrir sér? Þetta er tækifæri fyrir þig. Kannski viltu biðjast afsökunar herra Glazer?"

Sally Lockwood spurði Avram þessara spurninga en hann hunsaði hana og keyrði í burtu. Myndskeið af þessu má sjá hér að neðan.

Stuðningsmenn United eru allt annað en sáttir við Glazer fjölskylduna og voru hörð mótmæli á Old Trafford sem gengu það langt að leik Man Utd og Liverpool var frestað. Eigendurnir hafa verið óvinsælir í mörg ár en kornið sem fyllti alla mæla voru þau áform að ætla að taka þátt í Ofurdeildnni.

Hætt var við að stofna Ofurdeildina, í bili hið minnsta, en stuðningsmenn eru mjög sárir vegna áformanna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner