Fotbolti.net
10.07.26 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Éderson fer ekki til Man Utd

Éderson fer ekki til Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Éderson fer ekki til Manchester United. Fabrizio Romano greinir frá.
Staðfestir að hann sé á leið til Man Utd
TENGT EFNI

Staðfestir að hann sé á leið til Man Utd

Félagaskiptin virtust vera frágengin þegar Éderson stóðst læknisskoðun úti í Bandaríkjunum þar sem hann var staddur með brasilíska landsliðinu. Í kjölfarið barst tilkynning um að Rauðu djöflarnir vildu fá leikmanninn til sín í nánari skoðun áður en skrifað yrði undir samkomulag.

Éderson flaug því til Manchester eftir að Brasilía var slegin úr leik á HM en virðist ekki hafa staðist læknisskoðun enska úrvalsdeildarfélagsins. Það hefur þó ekki verið greint frá því hvers vegna hætt var við félagaskiptin.

Atalanta telur Éderson vera við góða heilsu og mun bjóða hann velkominn aftur til Bergamó, þó að mögulegt sé að hann verði seldur síðar í sumar. Ýmis félög eru áhugasöm um Éderson sem er falur fyrir um 50 milljónir evra.

Éderson fer í aðra læknisskoðun eftir HM
TENGT EFNI

Éderson fer í aðra læknisskoðun eftir HM

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Éderson fer ekki til Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.