Fotbolti.net
11.07.26 - 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Shkelzen Veseli á leið í Val

Shkelzen Veseli á leið í Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Shkelzen Veseli er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Val, hann er búinn að ná samkomulagi um samning sem tekur gildi eftir tímabilið. Samningur hans við Leikni rennur út í haust.

Möguleiki er á því að hann fari frá Leikni í glugganum sem opnar 16. júlí, en Reykjavíkurfélögin yrðu þá að ná samkomulagi um félagaskipti.
Hin hliðin - Shkelzen Veseli (Leiknir)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Shkelzen Veseli (Leiknir)

Veseli er 22 ára miðjumaður sem var orðaður við Val í vetur en tilboðum Vals var hafnað.

Hann er uppalinn hjá Leikni og hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu. Í fyrra skoraði hann sex mörk í deild og bikar.

Hann hefur leikið allan sinn feril með Leikni ef frá er talið tímabilið 2022 þegar hann var á láni hjá Þrótti Vogum.
Shkelzen Veseli á leið í Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.