Landsliðsmaður Suður-Afríku látinn

Mynd: Suður-Afríska fótboltasambandið

Mynd: Suður-Afríska fótboltasambandið
Jayden Adams, leikmaður suður-afríska landsliðsins, er látinn aðeins 25 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikmannasamtökunum í Suður-Afríku í dag.
Adams spilaði alla þrjá leiki Suður-Afríku í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Miðjumaðurinn byrjaði tvo leiki, gegn Mexíkó og Tékklandi, og kom inn á sem varamaður gegn Suður-Kóreu.
Alls lék hann níu landsleiki frá því hann þreytti frumraun sína fyrir tveimur árum.
Adams var á mála hjá Mamelodi Sundowns í heimalandinu og vann Meistaradeild Afríku á síðustu leiktíð. Hann lék einnig með Stellenbosch í Suður-Afríku.
Leikmannasamtökin í Suður-Afríku hafa greint frá andláti Adams, en dánarorsök hefur ekki verið gefin upp að svo stöddu.
„SAFPU, leikmannasamtökin í Suður-Afríku, eru í uppnámi yfir sviplegu fráfalli Jayden Adams, miðjumanns Mamelodi Sundowns og suður-afríska landsliðsins.“
„Jayden hafði nýlega spilað með Suður-Afríku á heimsmeistaramótinu þar sem hann bar vonir þjóðarinnar með stolti, hugrekki og reisn. Fráfall hans er gríðarlegt áfall fyrir fjölskyldu hans, liðsfélaga, félögin sem hann lék með, fótboltasamfélagið og þjóðina alla.“
„Við viljum senda fjölskyldu hans, Mamelodi Sundowns, Stellenbosch FC, suður-afríska landsliðinu og öllum þeim sem hann snerti hjörtu, okkar dýpstu samúðarkveðjur.“
„Suður-afrískur fótbolti hefur misst hæfileikaríkan leikmann, stoltan fulltrúa leiksins og ungan mann sem átti framtíðina fyrir sér. Megi sál hans hvíla í eilífum friði,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.