Fotbolti.net
10.07.26 - 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Heimildarmenn hjá United hafna fréttaflutningi Romano

Heimildarmenn hjá United hafna fréttaflutningi Romano
Canon

Mynd: EPA

Fótboltafréttamaðurinn mikilsvirti Fabrizio Romano greindi frá því í dag að brasilíski miðjumaðurinn Éderson væri ekki lengur á leið til Manchester United.
Éderson átti aðeins eftir að fara í læknisskoðun hjá Rauðu djöflunum og greindi Romano, sem klikkar nánast aldrei í sínum fréttaflutningi, frá því að ekkert yrði úr skiptunum.

Heimildarmenn Sky Sports hjá Man Utd neita þó fyrir fregnirnar. Þeir segja það vera rangt að hætt hafi verið við félagaskiptin, Éderson á einfaldlega eftir að ljúka við læknisskoðunina. Sky Italia segir hins vegar að United hafi hætt við skiptin, rétt eins og Fabrizio Romano.

Ef félagaskiptin ganga í gegn mun United greiða 45 milljónir evra fyrir miðjumanninn.

Éderson fer ekki til Man Utd
TENGT EFNI

Éderson fer ekki til Man Utd

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.