Fotbolti.net
11.07.26 - 13:49
Brynjar Ingi Erluson

Chelsea setur verðmiða á Garnacho

Chelsea setur verðmiða á Garnacho
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur sett verðmiða á argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho.
Chelsea er reiðubúið að selja Garnacho aðeins ári eftir að hafa keypt hann frá Manchester United.

Leikmaðurinn vill fá meiri spilatíma og það er ekki tryggt hjá Chelsea.

Sky Sports segir líklegustu niðurstöðuna vera að Garnacho verði seldur frá félaginu. Félög í ensku úrvalsdeildinni þurfa að greiða 50 milljónir punda, en Chelsea gæti verið opið fyrir því að selja hann á lægra verði til félags utan Englands. Félagið tekur þó skýrt fram að aðeins sala komi til greina.

Fjölmörg félög hafa áhuga á hinum 22 ára gamla Garnacho og Roma er eitt þeirra. Þá hafa einnig félög í ensku úrvalsdeildinni og Sádi-Arabíu sýnt honum áhuga.

Chelsea vinnur nú með leikmanninum og umboðsmönnum hans að því að finna lausn sem hentar öllum aðilum.

Garnacho er ekki mættur aftur til æfinga hjá Chelsea, enda verður framtíð hans ákveðin á næstu tveimur vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.