Enska stórveldið Manchester City er að láta lögmenn sína skoða mögulega lögsókn á hendur Enrique Riquelme sem lét stór orð falla í baráttunni um forsetastól Real Madrid í gær.
Riquelme sagðist ætla að krækja í Rodri, Erling Haaland og topp þjálfara ef hann vinnur forsetakosningarnar í Madríd um helgina.
04.06.2026 06:34
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri
Rodri og Haaland eru samningsbundnir Man City og íhugar félagið að kæra.
„Sögurnar frá Spáni varðandi framtíð Erling Haaland eru falskar. Það er enginn möguleiki að þessi félagaskipti verði að veruleika í sumar og það er ekkert riftunarákvæði í samningi leikmannsins," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Man City.
„Við erum að skoða lögsókn fyrir misnotkun á ímyndarrétti leikmanns okkar."
Það vekur athygli að hvergi er minnst á nafn Rodri í yfirlýsingu Man City. Spænski miðjumaðurinn er með eitt ár eftir af samningi við félagið.
04.06.2026 06:43
Yfirlýsing frá umboðsteymi Haaland





