04.08.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Benik Afobe lánaður frá Arsenal í Bolton (Staðfest)

Benik Afobe í æfingaleik með Arsenal í síðasta mánuði.

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur lánað framherjann Benik Afobe til Bolton Wanderers út komandi tímabil.
Afobe sem er 19 ára gamall hefur aldrei spilað með aðalliði Arsenal en hefur verið á láni hjá Reading og Huddersfield áður.
Owen Coyle stjóri Bolton var ánægður með samninginn. ,,Benik er mjög spennandi viðbót við hópinn okkar þetta tímabilið,\" sagði hann.
,,Það er þegar hægt að sjá að hann mun verða mjög góður leikmaður. Hann hefur auga fyrir markinu, er sterkur framherji og á eftir að sýna miklu meira.\"
Bolton hefur fengið Keith Andrews, Matt Mills, Joe McKee og Andy Lonergan í sumar en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.