04.08.12 - 15:05
Ívan Guðjón Baldursson
Yobo kominn til Fenerbahce (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Joseph Yobo hefur skrifað undir þriggja ára samning við tyrkneska félagið Fenerbahce.
Yobo er nígerískur varnarmaður sem kemur frá Everton, en hann hefur spilað hjá Fenerbahce á láni síðustu tvö tímabil.

Ekki er greint frá verðinu á Yobo en leikmaðurinn er fyrsti leikmaður sem David Moyes keypti til Everton þegar hann tók við liðinu árið 2002.
Yobo var einnig fyrsti maðurinn frá Afríku til að vera fyrirliði Everton en missti sæti sitt í byrjunarliðinu með komu John Heitinga og Sylvain Distin.