Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. ágúst 2022 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Calvert-Lewin líklega frá í sex vikur
Mynd: EPA

Dominic Calvert-Lewin sóknarmaður Everton verður frá í allt að sex vikur en þetta staðfesti Frank Lampard stjóri liðsins á blaðamannafundi í dag.


Calvert-Lewin var frá vegna meiðsla í fjóra mánuði af síðustu leiktíð en hann meiddist á æfingu á dögunum.

„Að missa leikmann eins og Dominic í upphafi tímabils mun hafa áhrif. Aðrir leikmenn verða að stíga upp, vonandi líða sex vikur fljótt og við fáum Dominic aftur," sagði Lampard.

Salomon Rondon getur ekki byrjað í fremstu víglínu Everton þar sem hann er í leikbanni frá því á síðustu leiktíð. Það er mögulegt að Dele Alli fái að byrja í fremstu víglínu en kantmennirnir Anthony Gordon og Alex Iwobi koma einnig til greina.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner