Fotbolti.net
04.09.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Axel Witsel kominn til Zenit (Staðfest)

Witsel og Pablo Aimar mynduðu frábæra miðju hjá Benfica á síðasta tímabili.

Witsel og Pablo Aimar mynduðu frábæra miðju hjá Benfica á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Zenit frá Sankti Pétursborg er að eiga stórkostlegan dag á leikmannamarkaðinum en liðið hefur nú eytt um 100 milljónum evra í tvo leikmenn.

Hulk kom til félagsins fyrir um það bil 60 milljónir evra og það var greint frá því í gærkvöld á Fótbolta.net. Witsel kemur til félagsins fyrir 40 milljónir evra, en samtals eru þetta rétt rúmar 79 milljónir punda.
Witsel kemur til félagsins frá Benfica en hann er aðeins 23. ára gamall og kom til portúgalska félagsins fyrir 7 milljónir evra síðasta sumar.

Félagaskiptaglugginn í Rússlandi lokar ekki fyrr en síðar í september og þess vegna geta félög þar enn keypt leikmenn.

Witsel er belgískur miðjumaður og verður mikill missir fyrir Benfica sem missti einnig Javi Garcia til Manchester City á lokadegi breska félagaskiptagluggans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.