04.09.12 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gregory van der Wiel til PSG (Staðfest)

Van der Wiel í leik með hollenska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain er búið að kaupa Gregory van der Wiel frá Ajax og er leikmaðurinn búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við franska félagið.
Wiel er hægri bakvörður sem var gríðarlega eftirsóttur af Arsenal í sumar eftir að hafa verið byrjunarliðsmaður hjá Ajax síðustu fimm tímabil.

Wiel er aðeins 24 ára gamall og er byrjunarliðsmaður í hollenska landsliðinu með 35 landsleiki að baki.
,,Gregory Van Der Wiel, 24 ára gamall, landsliðsmaður Hollands, er kominn frá Ajax til Paris Saint-Germain, á fjögurra ára samning,\" stendur á heimasíðu PSG.
PSG hafði þegar keypt leikmenn fyrir yfir 120 milljónir punda þar sem Thiago Silva, Lucas Moura, Ezequiel Lavezzi, Zlatan Ibrahimovic, Marco Verratti og Youness El Baillal komu til félagsins í félagaskiptaglugganum í sumar.