04.09.12 - 16:48
Elvar Geir Magnússon
Michael Owen til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Michael Owen hefur skrifað undir eins árs samning við Stoke City en frá þessu var greint síðdegis í dag.
Owen er 32 ára og fór á frjálsri sölu frá Manchester United í lok síðasta tímabils.
Hann hefur verið duglegur að minna fólk á það á Twitter að hann væri ekki hættur í fótbolta og væri í leit að nýju félagi.
Owen var meðal annars orðaður við sitt gamla félag Liverpool en nú er ljóst að hann mun leika undir stjórn Tony Pulis hjá Stoke á þessu tímabili.