Fotbolti.net
04.09.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Atli Barkar til Norwich (Staðfest)

Atli Barkar til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Völsungs

Enska félagið Norwich hefur fengið Atla Barkarson til liðs við sig frá Völsungi á Húsavík.
Hinn 16 ára gamli Atli fór til Norwich á reynslu fyrr á árinu og hann hefur nú gengið í raðir félagsins.

Atli verður í U18 ára liði Norwich til að byrja með en þar spilar hann sem vinstri kantmaður og vinstri bakvörður.

Atli lék sjö leiki með U17 ára landsliðinu fyrr á þessu ári.

Í síðasta mánuði spilaði Atli tvo leiki með U18 ára landsliðinu á æfingamóti í Tékklandi. Þar voru flestir leikmenn í liðinu fæddir árið 2000 en Atli er fæddur árið 2001.

Þá skoraði Atli tvö mörk í sjö leikjum með Völsungi í 2. deildinni í sumar áður en hann hélt til Englands á dögunum.

Í fyrra steig Atli sín fyrstu skref með meistaraflokki Völsungs en hann spilaði þá tvo leiki í 2. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.