Fotbolti.net
04.09.18 - 12:35
Magnús Már Einarsson

Árni Vill til Nieciecza (Staðfest)

Árni Vill til Nieciecza (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Árni Vilhjálmsson hefur samið við Bruk-Bet Termalica Nieciecza í pólsku B-deildinni.

Árni fór í læknisskoðun hjá liðinu í morgun og skrifaði í kjölfarið undir samning.
Hinn 24 ára gamli Árni komst að samkomulagi um starfslok hjá Jönköpings Södra á dögunum og hefur verið án félags síðan þá.

Bruk-Bet Termalica Nieciecza er frá smábænum Nieciecza en þar eru einungis 750 íbúar.

Þegar átta leikjum er lokið í pólsku B-deildinni er Nieiciecza í næstneðsta sæti með fimm stig.

Árni er uppalinn hjá Breiðabliki en hann fór út í atvinnumennsku árið 2015 þegar hann samdi við Lilleström.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.