Fotbolti.net
04.09.18 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Bjerregaard samdi við Hvidovre (Staðfest)

Bjerregaard samdi við Hvidovre (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski framherjinn Andre Bjerregaard hefur samið við Hvidovre í B-deildinni í heimalandi sínu.

Bjerregaard yfirgaf herbúðir KR í síðustu viku og í gær samdi hann við Hvidovre sem er í 7. sætinu í dönsku B-deildinni eftir níu umferðir.
Hinn 26 ára gamli Bjerregaard kom til KR um mitt sumar í fyrra frá Horsens í Danmörku.

Bjerregaard skoraði fjögur mörk í tíu leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra og gerði í kjölfarið nýjan samning við KR.

Í sumar hefur skoraði fjögur mörk í sextán leikjum í Pepsi-deildinni áður en hann yfirgaf félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.