Fotbolti.net
04.09.18 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Macheda til Panathinaikos (Staðfest)

Kiko Macheda.

Kiko Macheda.

Canon

Mynd: Getty Images

Gríska félagið Panathinaikos hefur gert þriggja ára samning við ítalska framherjann Federico Macheda.

Í síðustu viku var Panathinaikos að reyna að fá Kolbein Sigþórsson frá Nantes í Frakklandi en það náðist ekki fyrir lok félagaskiptagluggans.

Í sumar yfirgaf Macheda lið Novara í Serie B á Ítalíu og þar sem hann var samningslaus gat hann skrifað undir hjá Panahinaikos þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn í Grikklandi sé lokaður.

Hinn 27 ára gamli Macheda skaust fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði sigurmark Manchester United gegn Aston Villa tímbilið 2008/2009 en það mark hjálpaði United að landa titlinum.
Ferill Macheda náði hins vegar aldrei hæðum hjá United en hann fór til Sampdoria, Queens Park Rangers, Stuttgart, Doncaster og Birmingham á láni áður en hann samdi við Cardiff árið 2014.

Panathinaikos er gamalt stórveldi í Grikklandi en liðið endaði í 11. sæti í deildinni á síðasta tímabili og er ekki í Evrópukeppni á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.