Fotbolti.net
04.10.18 - 13:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Southgate skrifar undir nýjan samning - Stýrir Englandi í Katar (Staðfest)

Southgate fær traustið áfram.

Southgate fær traustið áfram.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Gareth Southgate sé búinn að skrifa undir nýjan samning um áframhaldandi setu í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Englands.
Southgate tók við enska landsliðinu í lok árs 2016 eftir að hafa stýrt enska U21 landsliðinu með fínum árangri. Hann skrifaði þá undir fjögurra ára samning en eftir gífurlega góðan árangur á HM í Rússlandi þá mun hann fá samning út HM 2002.

Southgate mun fá góða launahækkun, 3 milljónir punda í árslaun samkvæmt fréttum.

Southgate kom Englandi í undanúrslitin á HM í Rússlandi en liðið endaði í fjórða sæti. Það er betri árangur en nokkur átti von á áður en mótið hófst.

Næsta verkefni Englands er í Þjóðadeildinni gegn Króatíu og Spánverjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.