Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. desember 2018 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Sampdoria sló Spal úr leik
Mynd: Getty Images
Sampdoria, Bologna og Benevento komust í 16-liða úrslit ítalska bikarsins með sigrum í dag.

Sampdoria lagði Spal að velli í eina úrvalsdeildarslag dagsins. Sergio Floccari kom Spal yfir í fyrri hálfleik en Gregoire Defrel jafnaði rétt fyrir leikhlé.

Pólverjinn efnilegi Dawid Kownacki gerði sigurmark Samp á lokakaflanum. Heimamenn voru mun betri í leiknum og verðskulduðu sigurinn.

Riccardo Orsolini gerði þá tvennu í öruggum sigri Bologna gegn Crotone á meðan Filippo Bandinelli skoraði eina mark Benevento gegn Cittadella.

Liðin eiga öll afar erfiða útileiki framundan. Sampdoria heimsækir AC Milan í næstu umferð á meðan Benevento mætir Inter og Bologna spilar við Juventus.

Sampdoria 2 - 1 Spal
0-1 Sergio Floccari ('34)
1-1 Gregoire Defrel ('45)
2-1 Dawid Kownacki ('82)

Bologna 3 - 0 Crotone
1-0 Riccardo Orsolini ('40)
2-0 Diego Falcinelli ('56)
3-0 Riccardo Orsolini ('67)

Benevento 1 - 0 Cittadella
1-0 Filippo Bandinelli ('77)
Athugasemdir
banner